top of page

1973- allir í bártana

í Janúar mánuði 2013 hófst verkefnið „1973-Allir í bátana“ með því að útbúa Facebook síðuna 1973 i bátana.

Þetta hófst allt saman 2010 að ég held þegar Sagnheimar með Jóhönnu ýr sem forstöðumann hóf að safna sögum frá gosnóttinni

Ég fór að afla mér upplýsinga um áramótin 2012-13 um stöðu verkefnisins og virtist það vera komið í dvala , eftir spjall við Kára var ákveðið að fara í samstarf og skrá hvernig fólk fór frá eyjum ,hófst þá samstarf okkar Helgu Hallbergs í sögusöfnun hafði safnast nokkur nöfn á bátum og fólki þar með var kominn grunnur fyrir áfram hald



Facebook síðan fékk óvænt umfjöllun í öllum helstu vefmiðlum þess tíma sem hjálpaði mikið til að starta verkefninu . Birti ég lista hvers báts og uppfærði reglulega . Einstaklingarnir sem flúðu gosið höfðu sjálfir samband við mig bæði símleiðis og í gegnum vefinn og skráðu sig og sína , margir þeirra sögðu sögur eða sögubúta sem ég fékk svo aftur að birta sem var nauðsynlegt til að viðhalda athyglinni á netinu

Þetta var mikiláskorun að halda þessu verkefni úti sérstaklega fyrstu mánuðina , 2016 var farþega skráningin kominn nánast á enda og ekki hægt að fara mikið lengra ,þó hafa komið frá þeim tíma leiðréttingar og viðbætur . Þá var komið að því að reyna að koma verkefninu heim sem var ekki alveg ljóst hvernig ætti að fara fram án þess að lenda í skúffu og gleymast , ein tilraunin var að útbúa vefsíðu með myndum og sögunum ,þar er hægt að fletta upp einstaklingum og bátum í gagnagrunninum . Einnig kom sú hugmynd að birta farþegalistana í bæjarblaði en ekki varð úr því

Það urðu svo vendingar í haust og nú er verkefnið komið á þriðja þrep , Ómar Garðarsson kom að tali við mig síðasta haust , hann hefur frá því að hann vissi af verkefninu haft mikinn áhuga á því , niðurstaðan af okkar spjalli var að hann ásamt Atla Rúnari Halldórssyni taka nú við verkefninu af mér og Sagnheimum og taka það í nýjar víddir

Mér sýnis þeir ætla að skipta því upp í 3 flokka ,flóttinn ,gos tíminn og svo uppbyggingin sjáum meira af því á morgun en þeir hafa fengi góða einstaklinga með sér í lið

Kveðja Ingibergur Óskarsson


Comments


Featured Posts

Þessi síða er í stöðugri þróun 
reyni að setja reglulega

póst hér inn 
 

Nýlegur póstur
Archive
Search By Tags
No tags yet.
Follow Us
  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square
bottom of page