Gluggað í blöðin
Hef verið að glugga í blöðin frá jan 73 og rekist á nöfn einstaklinga sem eru ekki með fullnaðar skráningu hjá mér.
í Þjóðviljanum 26.jan 1973 kemur fram að Stefán Gunnar Kragh hafi ekki farið strax upp á land . Var hinsvegar ekki eins heppin með Sigfús Kristjánsson en spjallað er við hann í þjóðviljanum 31.1.1973 bls 10 , en hann var allavega bíllaus og fyrst hann var í eyjum er líklegt að hann hafi verið í áhöfn á bát enda talar hann um gæftir Eg rakst á viðtal við Kristjönu Árnadóttir og Leopold þar kemur fram að þau hafi leigt hjá Sigurði Bjarnasyni , hafði ég samband við hana og hún staðfesti að hann hafi farið með þeim upp á land Var að setja inn fleiri úrklippur,set bæði myndir af blöðunum og afrit sem PDF skjöl á sömu síðuna
Vísir , Þjóðviljinn , Morgunblaðið og Alþýðublaðið eru komin inn með þær fréttir sem tengjast gasinu og birtust í jan “73 setti einnig inn nýjan lið ýmis blöð/tímarit